Heilbrigðisþjónusta vegna eldgossins

Mjög mikið öskufall er á Klaustri og í nágrenni.
Mjög mikið öskufall er á Klaustri og í nágrenni. mbl.is/Jónas Erlendsson

Viðbragðsstjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu)  hefur í morgun verið í sambandi við stjórnendur heilsugæslustöðvanna á Kirkjubæjarklaustri, Vík og Rangárþingi.   Læknar og hjúkrunarfræðingar eru á öllum stöðvunum til að sinna nauðsynlegri þjónustu í samstarfi við almannavarnarnir ofl.  

Í fréttatilkynningu segir að stjórnendur HSu séu í góðu sambandi við heilbrigðisstarfsfólk á svæðinu og þá sem stjórna almannavarnarmálum. Reynt er að fylgjast eins vel með heilsufarsástandi og kostur er og veita nauðsynlega þjónustu.   Fleiri heilbrigðsstarfsmenn verða fengnir til starfa eftir því sem á þarf að halda.  HSu  og heilbrigðisyfirvöld munu veita alla nauðsynlega aðstoð eftir því sem þörf verður á.

Sem stendur virðast mál, sem snúa að heilbrigðisþjónustunni vegna eldgossins, vera í góðum farvegi.

Hægt verður að nálgast hlífðargleraugu og andlitsgrímur  á heilsugæslustöðvum Hsu og víðar. Það verður tilkynnt nánar eftir þörfum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert