Keyrði út í Fróðarárós

Morgunblaðið/Alfons

Ungur ökumaður missti stjórn á bifreið sinni skammt frá Ólafsvík á tíunda tímanum í kvöld.

Að sögn lögreglu mun ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, hafa misst vald á bifreiðinni vegna vindhviðu með þeim afleiðinungum að bíllinn endaði ofaní í Fróðarárósi. Ökumanninn sakaði ekki, en ekki er enn vitað um tjón á bílnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert