Leikskólar opnir á morgun

Leikskólar verða opnir á morgun.
Leikskólar verða opnir á morgun. Kristinn Ingvarsson

Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, sviðsstjóri leikskólasviðs Reykjavíkurborgar, segist ekki gera ráð fyrir því að leikskólum borgarinnar verði lokað á morgun þrátt fyrir að öskumistur liggi yfir borginni.

„Ég held að börnin séu alveg jafn vel komin á leikskólunum eins og heima hjá sér og það yrði ófremdarástand ef við færum að loka leikskólunum. Ég held að það sé ekki ástæða til þess,“ segir Ragnhildur.

Hún gerir þó ráð fyrir að börnunum verði haldið inni verði ástandið svipað á morgun og hefur verið nú í kvöld. „Við fylgjumst alltaf með svifryksmengun og ef hún er mikil þá eru börnin inni og sérstaklega þau sem eru viðkvæm.“

„Heilbrigðiseftirlitið fylgist mjög vel með þessu og við förum eftir þeirra tilmælum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert