Öllu innanlandsflugi aflýst

Reykjavíkurflugvöllur.
Reykjavíkurflugvöllur. mbl.is/ÞÖK

Öllu innanlandsflugi í dag hefur verið aflýst vegna eldgossins í Grímsvötnum. Samkvæmt áætlun Flugfélags Íslands átt að fara um 20 ferðir frá Reykjavíkurflugvelli í dag.

Millilandaflugið liggur líka niðri, en Keflavíkurflugvöllur lokaðist um kl. 8:30 í morgun eftir að Veðurstofa Bretlands ákvað að banna flug frá flugvellinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert