Upp á jökul á Bola

Boli, snjóbíll Hjálparsveitar skáta í Reykjavík.
Boli, snjóbíll Hjálparsveitar skáta í Reykjavík. Landsbjörg

Boli, snjóbíll Hjálparsveitar skáta í Reykjavík, hefur verið gerður klár fyrir leiðangur á Vatnajökul með jarðvísindamenn sem eru á leið austur að Skálafellsjökli.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsbjörgu. Boli hefur verið í biðstöðu þar sem jarðvísindamennirnir, sem eru þrír ásamt tæknimanni, hafa þurft að bíða af sér öskufall á Kirkjubæjarklaustri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert