9 mánaða fangelsi fyrir kannabisrækt

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 37 ára gamlan karlmann í 9 mánaða fangelsi fyrir kannabisrækt.

Alls var lagt hald á 504 kannabisplöntur, 254 grömm af kannabisstönglum, 3,3 kíló af kannabislaufum fleiri fíkniefni auk búnaðar til að rækta maríjúana.

Maðurinn hefur áður hlotið dóma fyrir ýmis brot, þar á meðal 15 mánaða fangelsi fyrir húsbrot, rán, eignaspjöll, tilraun til fjárkúgunar og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni í mars á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert