„Askan læðist inn í hús“

„Það er um það bil klukkutími síðan ég þurrkaði af gluggakistunni en það er strax komið þykkt lag af ösku“, segir Linda Agnarsdóttir íbúi á Kirkjubæjarklaustri. Mbl Sjónvarp kíkti í heimsókn til hennar í dag en hún hélt sig heima við ásamt börnum sínum þremur. „Börnin kippa sér ekkert upp við þetta“

Stefnt var að því að kenna tvo daga til viðbótar í grunnskólanum á Kirkjubæjarklaustri en nú hefur skólahaldi verið aflýst að undanskildum skólaslitum í byrjun júní. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert