Hvasst undir Eyjafjöllum

Öskumistur á Suðausturlandi.
Öskumistur á Suðausturlandi. mbl.is/Ernir

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir að talsvert öskufall hafi verið í dag, suður og suðvestur af Vatnajökli. Þá hafi mikið sandfok verið undir Eyjafjöllum á köflum nú undir kvöld. Hvasst og miklir strengir.

Öskumistur hafi verið víða landinu, en öskumökkurinn hafi verið í 3 - 6 km hæð í dag.

Bent er á að hægt sé að fylgjast með svifryki á  nokkrum stöðum á landinu á vefsíðunni  http://kort.vista.is/ og fyrir Reykjavík á www.reykjavik.is 

Almannavarnir segja að vegurinn frá Vík í Mýrdal að Freysnesi sé ennþá lokaður af öryggisástæðum, en þar hafi verið dimmt og lítið skyggni í dag, sérstaklega í nágrenni við Kirkjubæjarklaustur. 

Almannavarnayfirvöld á Klaustri hafi verið í sambandi við íbúana þar og á bæjunum þar í kring og hugað að fólki. Íbúafundur hafi verið í dag í Hofgarði í Öræfum.

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa aðstoðað við að flytja fólk innan svæðisins í dag. Þá hafa birgðir af vatni í neysluumbúðum hafa verið sendar austur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert