Ráðherrar ætla á gossvæðið

Ekkert skyggni er nú á stóru svæði á Suðausturlandi.
Ekkert skyggni er nú á stóru svæði á Suðausturlandi. mbl.is/Eggert

Ráðherrar munu fara á gossvæðið og kynna sér aðstæður um leið og samgönguleiðir opnast. Þá mun samráðshópur undir stjórn almannavarna í dag hefja markvissa yfirferð yfir gossvæðið og síðar í þessari viku skila stjórnvöldum skýrslu um ástandið með tillögum um viðbrögð og framkvæmdir. 

Ríkisstjórnin fjallaði í morgun um stöðu mála vegna eldgossins í Grímsvötnum. Á ríkisstjórnarfundinum var farið almennt yfir stöðu mála á gossvæðinu og þær afleiðingar sem gosið hefur þegar haft eða kann að hafa á næstunni.

Á fundinn komu Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, Jón Bjartmarz, yfirlögregluþjónn, Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá Almannavörnum og Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði.

Ríkisstjórnin mun í dag og næstu daga meta afleiðingar eldgossins með fjölmörgum sérfræðingum og hagsmunaaðilum og mun í framhaldi af því taka ákvarðanir um nauðsynleg viðbrögð. 

Þá lýsir ríkisstjórnin yfir mikilli ánægju með framlag allra þeirra sem lagt hafa hönd á plóg við að stuðla að bættu öryggi og afstýra hættu frá því að gosið í Grímsvötnum hófst. Segir í tilkynningu, að vinnubrögð þessara aðila hafi verið fumlaus og samvinna einstaklega góð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert