Sauðfé hefur drepist í Landbroti

Sauðfé við bæinn Múlakot í dag.
Sauðfé við bæinn Múlakot í dag. Reuters

Sauðfé hefur fundist dautt vegna öskufalls á Arnardranga í Landbroti sunnan Kirkjubæjarklausturs. Fram kom í fréttum Útvarpsins, að Helgi V. Jóhannson bóndi þar gekk fram á dauða á og lamb á leið sinni frá bænum að fjárhúsum. 

Helgi sagðist vera með um 300 kindur og komin væru 480 lömb. Hann sagðist búast við að fleira fé sé dautt en hann hefur ekki getað kannað málið betur vegna þess að skyggni er nánast ekkert. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert