Stöðugt öskufall á Kirkjubæjarklaustri

mbl.is/Eggert

Öskufall hefur verið stöðugt á Kirkjubæjarklaustri og er skyggnið ekki nema um 5-50 metrar, að sögn lögreglunnar og björgunarsveitarmanna.

Fyrir liggur í dag að aðstoða fólk við að aftengja þakrennur til þess að koma í veg fyrir að niðurföll stíflist.

Fundir eru áætlaðir hjá Almannavörnum til þess að meta stöðuna og ákvarða um framhald aðgerða.

5-50 metra skyggni er á Kirkjubæjarklaustri.
5-50 metra skyggni er á Kirkjubæjarklaustri. Ernir Eyjólfsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert