17 ára dúx

Stúdentahópur ME.
Stúdentahópur ME.

Bestum árangri á stúdentsprófi í Menntaskólanum á Egilsstöðum í vor náði Hörður Bragi Helgason, með meðaleinkunnina 9,45. Hörður Bragi er einungis sautján ára og yngsti nemandi sem lokið hefur stúdentsprófi frá skólanum.

Alls brautskráðust þrjátíu og sjö nemendur  frá skólanum, sem var slitið sl. laugardag. 

Í skólaslitaræðu ræddi Helgi Ómar Bragason, skólameistari, um nýja námskrá sem skólinn tekur upp komandi haust.  Verður hverri önn m.a. skipt í tvennt og einbeitir hver nemandi sér að færri námsgreinum í einu og lýkur áföngum sínum á tæpum 9 vikum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert