Flogið eftir hádegi

Flugvöllum á Skotlandi var lokað í morgun vegna öskunnar. Þessi …
Flugvöllum á Skotlandi var lokað í morgun vegna öskunnar. Þessi mynd var tekin í Edinborg í morgun.

Flugvélum Iceland  Express til Kaupmannahafnar og London, sem fara áttu í morgun hefur verið seinkað vegna eldgossins í Grímsvötnum. 

Vél félagsins til London fer klukkan 15:20 frá Keflavík og vélin til Kaupmannahafnar klukkan 15:30.    Þá er vél félagsins frá New York væntanleg til Keflavíkur um klukkan 14.

Farþegar sem eiga bókað flug með félaginu eru beðnir að fylgjast vel með á heimasíðu félagsins icelandexpress.is og á netinu, því áætlun getur breyst með stuttum fyrirvara.
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert