Flóinn segir já

Frá kjaraviðræðum í Karphúsinu.
Frá kjaraviðræðum í Karphúsinu. mbl.is/Eggert

Kjarasamningur Flóafélaganna svonefndu við Samtök atvinnulífsins hefur í atkvæðagreiðslu verið samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Já sögðu 86%.

Flóafélögin eru Efling-stéttarfélag,Vlf. Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis. Á kjörskrá voru 15.614 félagsmenn. Atkvæði greiddu 3.034 eða um 19,4%. Já sögðu 2.603 eða 85,8% þeirra sem afstöðu tóku. Nei sögðu 423 eða 13,9%. Ógildir og auðir seðlar voru átta eða 0,3.%.

Atkvæðagreiðslan stóð frá því kjörseðlar voru sendir út til félagsmanna þann 10. maí sl. og lauk kl. 15.00 í dag. Niðurstaðan hefur verið tilkynnt sáttasemjara og Samtökum atvinnulífsins. Þetta þýðir að kjarasamningur Flóafélaganna og Samtaka atvinnulífsins á almennum markaði er kominn í gildi þar sem SA hefur þegar samþykkt samninginn af sinni hálfu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert