Fréttaskýring: Gos gæti bæst við gengið

Veiking krónunnar í mánuðinum, og þar með hækkun gjaldmiðla á borð við dollar, hefur haldið aftur af olíufélögunum hér á landi með lækkun eldsneytisverðs meira en orðið er. Telur Magnús Ásgeirsson, innkaupastjóri hjá N1, ólíklegt að eldsneytisverð breytist mikið á næstu dögum. Það geti þó breyst fljótt. Þannig gæti eldgosið í Grímsvötnum haft áhrif til hækkunar á mörkuðum ytra, eftir að fregnir bárust af lækkandi gengi hlutabréfa nokkurra flugfélaga í gær.

Bensínverð á erlendum mörkuðum hefur á einum mánuði lækkað um 9%, var 1.133 dollarar tonnið fyrir mánuði en var í gær komið niður í 1.028 dollara.

Frá síðustu mánaðamótum hefur gengisvísitala krónunnar hækkað um 1,4% og hefur gengi krónunnar veikst að sama skapi. Á þessum tíma hefur gengi dollars hækkað um 5,4%, úr 111 krónum hinn 2. maí sl. í rúmar 117 krónur í gær. Veikingin er enn meiri sé farið lengra aftur í tímann og vakti Greining Íslandsbanka á því athygli sl. föstudag að krónan hefði ekki verið veikari í heilt ár. Bara frá áramótum er veiking krónunnar gagnvart helstu viðskiptamyntum nærri 5%.

„Við höfum talið að með hækkandi sól og auknum straumi ferðamanna myndi gjaldeyrisinnflæði aukast og krónan jafnvel heldur sækja í sig veðrið líkt og gerðist í fyrra. Slík styrking lætur hins vegar ekki á sér kræla enn sem komið er og verður fróðlegt að sjá hvort þessi áhrif koma fram í meiri mæli á næstu vikum,“ sagði í Greiningu Íslandsbanka.

Veikingin vakið ugg

Ingólfur Bender hjá Greiningu Íslandsbanka segir erfitt að segja til um hvað skýri veikingu krónunnar undanfarið. Margt geti komið til. Búast hafi mátt við styrkingu með auknum straumi ferðamanna til landsins, og þar með auknu innflæði gjaldeyris, en sú þróun sé ekki komin af stað. Aðgerðir Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði, bæði nú og undir lok síðasta árs, hafi hugsanlega haft áhrif, tímabundið, til veikingar. Þá geti dráttur á uppbyggingu íslensks efnahagslífs hafa haft sín áhrif.

„Annars er mikil óvissa í þessu, ekki síst þar sem við erum með óvirkan gjaldeyrismarkað. Gjaldeyrishöftin hafa hins vegar virkað frekar vel. Þó að krónan hafi verið að lækka undanfarið er ekki hægt að segja annað en að hún hafi verið tiltölulega stöðug. En það er skiljanlegt að veikingin að undanförnu veki ugg hjá mörgum. Spurningin er þá hvort framhald verður á þessu, hvort styrking verði í sumar með auknum gjaldeyristekjum. Spár á gjaldeyrismarkaði eru annars háðar jafnmikilli óvissu núna og að spá fyrir þróun eldgossins,“ segir Ingólfur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert