Hæglætis veður á Klaustri

Frá Hraungerði í Álftaveri.
Frá Hraungerði í Álftaveri. Eggert Jóhannesson

Ágætt skyggni er á Kirkjubæjarklaustri og hæglætisveður. Að sögn lögreglunnar í bænum er logn og ekkert öskufok. Kvöldið hefur verið rólegt hjá lögreglunni en síðustu dagar hafa verið afar annasamir vegna eldgossins í Grímsvötnum.

Lögreglan segir fáa á ferli. Grátt sé um að litast og tún ekki kolsvört, eins og einhver kynni að ætla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert