Hraðakstur í Breiðholti

Lögreglumenn við umferðareftirlit. Mynd úr safni.
Lögreglumenn við umferðareftirlit. Mynd úr safni. mbl.is/Júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var við umferðareftirlit á tveimur stöðum í Breiðholti í dag; í Stekkjarbakka og Arnarbakka. Alls voru brot um 230 ökumanna mynduð.

Brot 187 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka í vesturátt, við Vatnsveituveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 580 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. 

Meðalhraði hinna brotlegu í Stekkjarbakka var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og fjórir óku á 70 km hraða eða meira. Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 32-40% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 64-65 km/klst.

59% óku of hratt 

Brot 46 ökumanna voru mynduð í Arnarbakka í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarbakka í vesturátt, við Dvergabakka. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 78 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tólf óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 67. Þrír ökumenn, sem fóru þarna um í morgun, eiga ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. 

Er lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað áður hefur brotahlutfallið oftar en ekki verið mjög hátt, líkt og var í dag, en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið um 48 km/klst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert