Líkist Kötlugosi

Vilhjálmur er að verða 88 ára, fæddist á Hnausum og …
Vilhjálmur er að verða 88 ára, fæddist á Hnausum og hefur átt heima þar alla tíð. Hann man vel eftir Grímsvatnagosinu árið 1934. mbl.is/Eggert

„Þetta virðist vera ákaflega líkt og í Kötlugosinu 1918, nema þá var meira öskufall og þetta stórkostlega vatnsflóð,“ segir Vilhjálmur Eyjólfsson, fyrrverandi bóndi á Hnausum í Meðallandi. Hann þekkir vel sögu sveitarinnar sem er mörkuð af afleiðingum eldgosa.

Hann segir að Grímsvötn séu mun lengra frá byggð en Katla. Þess vegna séu afleiðingarnar fyrir byggðina minni en af Kötlugosi. „Þá var myrkur um miðjan dag, eins og nú, vegna öskufalls og eldinga í mekkinum.“

Síminn stoppaði ekki

Vilhjálmur er að verða 88 ára, fæddist á Hnausum og hefur átt heima þar alla tíð. „Ég hef það gott hér inni, hef nógan mat og hjúkrunarkonan hringir daglega. Svo eru nágrannar og kunningjar að hringja úr Reykjavík. Það stoppaði varla síminn í gær, það mátti ekki meira vera,“ segir hann.

„Ég er með vatnsryksugu sem hreinsar loftið á augabragði. Ég hafði hana ekki í fyrra þegar hér lá öskumistur lengi yfir,“ segir Vilhjálmur.

Hann hefur meiri áhyggjur af bændum sem þurfi að fara út til að sinna skepnum. „Sunnlendingar eru ekki við því búnir að þurfa að hýsa allt, eins og Norðlendingar sem þurfa að eiga hús fyrir allt féð vegna vorhreta.“

„Þetta er brúngrátt, segja þeir sem sjá almennilega,“ segir Vilhjálmur um öskuna sem liggur um allt landið. Hann óttast að gosið vari eitthvað lengur með tilheyrandi öskufalli. „Þetta er svo stórt í sniðum, undir er stór kvikustrókur.

Ég man vel eftir Grímsvatnagosinu 1934, það stóð nokkuð lengi og gosmökkurinn var voldugur. Einn dag sást vottur af öskufalli, annars hef ég ekki heyrt af öskugosi í Grímsvötnum frá því á nítjándu öld.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert