Bændur setji búfé út

Sauðfé smalað við Kirkjubæjarklaustur í gær.
Sauðfé smalað við Kirkjubæjarklaustur í gær. Reuters

Matvælastofnun mælir með að bændur á öskusvæðinu á Suðausturlandi meti aðstæður og setji búfé út ef mögulegt er.

Þó sé mikilvægt að hafa það á svæði þar sem auðvelt er að hafa eftirlit með því og smala því saman ef á þarf að halda. Jafnframt þurfi að tryggja því aðgang að hreinu drykkjarvatni, góðu fóðri, salti og steinefnum.

Matvælastofnun segir, að lítið hafi verið um dauða eða veikindi í búfé. Askan valdi þó særindum í augum og þörf geti verið á að hreinsa augun. Gott sé að nota úðabrúsa til að úða vatni á augun.

Rannsóknir sem gerðar hafa verið á efnainnihaldi í ösku og vatni benda til að flúorstyrkur sé lítill. Búnaðarsamband Suðurlands og Landbúnaðarháskóli Íslands eru við sýnatökur í dag af ösku og gróðri og niðurstöður rannsókna á þeim er að vænta í næstu viku.

Sérgreinadýralæknir sauðfjár- og nautgripasjúkdóma hjá Matvælastofnun fer í dag ásamt ráðunauti frá Búnaðarsambandi Suðurlands og heimsækir bændur ásamt héraðsdýralækni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert