Hafði samband við 112

Björgunarsveitarmenn að störfum. Mynd úr safni.
Björgunarsveitarmenn að störfum. Mynd úr safni. mynd/Landsbjörg

Björgunarsveitir af Suðausturlandi eru nú á leið á svæði við Nýjadal, norðan Vatnajökuls, til leitar að þýskum ferðamanni sem saknað hefur verið og leitað var að í nótt. Maðurinn hafði samband við Neyðarlínuna nú fyrir skömmu og bað um aðstoð.
 
Hann gat ekki gefið nákvæmar upplýsingar um staðsetningu sína en einhverjar þó, auk þess sem hægt var að miða út grófa staðsetningu út frá símasendum á svæðinu.
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert