Radar sýnir enga virkni

Gosstöðvarnar í Grímsvötnum í gærkvöldi.
Gosstöðvarnar í Grímsvötnum í gærkvöldi. mbl.is/Björn Oddsson

Að sögn lögreglu var nóttin róleg í nágrenni gosstöðvanna og virðist gosið í rénun. Lögreglan varar við ferðum að gosstöðinni því ennþá kemur sprengjuvirknin í hviðum og öflugar sprengingar inn á milli. Er fólk beðið um að fara ekki nær gosstöðinni en að skála Jöklarannsóknafélagsins sem er í um 6 km. fjarlægð.


Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samhæfingarmiðstöð. Björgunarsveitarmenn hafa farið á milli bæja á svæðinu og meta með íbúum áhrif gossins og það sem er framundan við hreinsunar og uppbyggingarstörf.


Á fundi vísindamanna í Skógarhlíð í morgun kom fram að gosórói hefur farið minnkandi og er ekki lengur um að ræða samfelldan gosmökk. Ekki búist við miklu öskufoki. Gjóskuframleiðsla er óveruleg og er að mestu um að ræða gjóskufok á sunnanverðum jöklinum.


Að sögn sérfræðinga Veðurstofunnar mældist um kl. 21:00 í gærkvöldi strókur í um 7 km hæð og þá mældust 2 eldingar. Kl. 02:10-02:30 kom strókur sem mældist upp í 12 km hæð á radar og 12 eldingar mældust. Um kl. 03:30 mældist púff í 5 km hæð á radar sem er talinn hafa verið gufustrókur.
 
Síðan þá hefur ekkert mælst á radar og sjónarvottar á svæðinu (m.a. Ármann Höskuldsson) upplýstu um að komið hafi litlir strókar upp í 100-300 m hæð, sem eru mest megnis gufustrókar, en ösku megi þó sjá öðru hvoru.  Strókar sem fara upp í þessa hæð, hafa ekki áhrif á flugumferð, einungis á nær umhverfis sitt. Gosóróinn minnkaði mjög mikið upp úr 21:15 í ca. 30 mín.  Uppúr kl. 02:00 féll hann afur niður og hefur verið mun minni síðan. Ekki er hægt að útiloka að öflugri ösku strókar geti komið fyrirvaralaust.

Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF er nú í flugi með vísindamönnum og verða upplýsingar úr fluginu sendar til fjölmiðla að því loknu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert