Þýskur ferðamaður ófundinn

Vatnajökull.
Vatnajökull.

Eftirgrennslan eftir þýskum ferðamanni sem saknað er og talinn er vera staddur norðan Vatnajökuls bar engan árangur í nótt.

Vélsleðamenn frá Flugbjörgunarsveitinni á Hellu, Hjálparsveitinni Dalbjörg í Eyjafirði og Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri fóru í nótt og könnuðu alla skála á leiðinni í Nýjadal þar sem síðast heyrðist til mannsins. Í ljós kom að hann hafði skrifað í gestabók í Versölum 14. maí en engin önnur ummerki sáust um ferðir hans.
 
Nú er rannsóknarvinna í gangi og verður ákveðið um frekari aðgerðir í framhaldi af henni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert