Máli sjóðsfélaga vísað frá

Hæstiréttur
Hæstiréttur mbl.is / Hjörtur

Hæstiréttur hefur staðfest frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur á máli tíu sjóðsfélaga í peningamarkaðssjóðnum Sjóði 9 gegn Íslandssjóðum sem Glitnir rak. Sjóðsfélögunum var að auki gert að greiða kærumálskostnað.

Vísað var í forsendur héraðsdóms þar sem fram kemur að talið sé að sjóðsfélagarnir hafi hvorki afmarkað eða skýrt nægilega hvert tjón þeirra gæti talist vera né forsendur þeirrar staðhæfingar að mat Íslandssjóða á verðbréfunum hefði ekki endurspeglað „raunverulegt virði“ þeirra á þeim tíma sem um er rætt.

Sjóðfélagarnir fóru í mál gegn Íslandssjóðum og kröfðust skaðabóta vegna rýrnunar á verðmæti eignarhluta sinna í Sjóði 9 – peningamarkaðsbréfum á þeim forsendum að mat á bréfum Baugs Group, Eimskips og FL-Group/Stoða endurspeglaði ekki raunverulegt verðmæti þeirra á tilteknum tíma sumarið og haustið 2008, fyrir fall bankans. Töldu þeir að það að gengi sjóðsins hefði ekki verið lækkað hefði falið í sér mismunun gagnvart öðrum eigendum hlutdeildarskírteina í Sjóði 9 sem hefðu innleyst þau fyrir fall bankans.

Íslandssjóðir kröfust hins vegar frávísunar og var fallist á kröfu þeirra á báðum dómstigum.

Í dómi Hæstaréttir segir meðal annars: „Af því sem að framan greinir er ljóst að athuga verður réttarstöðu hvers sóknaraðila sjálfstætt við mat á hugsanlegri skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart þeim og að skilyrðum 1. mgr. 19. gr. laga nr. 91/1991 um samlagsaðild er því ekki fullnægt. Með því að varnaraðili hefur meðal annars byggt frávísunarkröfu sína á þessum grundvelli ber þegar af þeirri ástæðu að staðfesta hinn kærða úrskurð.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert