„Þetta eru gríðarleg vonbrigði og þó að ekki væri byggt nema á gögnum Hafrannsóknastofnunar þá væri hægt að auka þorskafla í 250.000 tonn án þess að veiðistofn minnki.“
Þetta segir Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, um ákvörðun Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra, en tilkynnt var í gær að þorskvótinn á næsta fiskveiðiári verði 177.000 tonn, sem er 10% aukning frá yfirstandandi fiskveiðiári. Þá verði 5.000 tonna minnkun á ýsukvóta í 45.000 tonn.
Smábátasjómenn telja að Hafrannsóknastofnun vanmeti þorskstofninn stórkostlega og að aðferðirnar dugi engan veginn til að mæla stærð stofnsins, tillögurnar séu algjörlega óraunhæfar. Veiðimynstrið á miðunum og mælingar Hafrannsóknastofnunar séu eins og svart og hvítt. „Í ríkisstjórnarsáttmálanum er rætt um að skipa ráðgefandi nefnd útgerðarmanna og sjómanna en hún hefur ekki enn verið skipuð,“ segir Arthur.