Stuðningur við stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu

Meirihluti landsmanna er hlynntur því að þjóðgarður verði stofnaður á miðhálendi Íslands. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem Capacent Gallup vann fyrir öll helstu náttúruverndarsamtök Íslands.

Spurt var: „Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands?“

Eru 56% aðspurðra hlynntir stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu, 17,8% aðspurðra eru andvígir en 26,2% eru hvorki hlynntir né andvígir, að því er fram kemur í tilkynningu sem Náttúruverndarsamtök Íslands sendu á fjölmiðla. 

„Hugmyndin um þjóðgarð á miðhálendi Íslands á vísan stuðning meðal allra aldurshópa og íbúa allra landshluta. Mestur er stuðningurinn í Reykjavík en þar segjast 64% vera hlynnt stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Minnstur er stuðningurinn í Suðurkjördæmi en þar segist þó rétt innan við helmingur vera hlynntur stofnun þjóðgarðs eða 45%,“ segir í tilkynningunni.

Náttúruverndarsamtök Íslands benda á að í lok næstu viku renni út frestur til að skila athugasemdum við drög að þingsályktun um Rammaáætlun. Segir að samtökin, sem hafi látið gera könnunina, telji að niðurstaða skoðanakönnunarinnar sé til marks um skýran vilja almennings til þess að vernda miðhálendið sem eina óraskaða heild. Að öræfi landsins sé auðlind sem sífellt verður dýrmætari.

Eftirfarandi samtök stóðu að skoðanakönnunni

  • Eldvötn - samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi
  • Félag um verndun hálendis Austurlands
  • Framtíðarlandið
  • Fuglavernd
  • Jöklahópurinn Skagafirði
  • Landvernd
  • Náttúruvaktin
  • Náttúruverndarsamtök Íslands
  • Náttúruverndarsamtök Suðurlands
  • Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands
  • Náttúruverndarsamtök Vestfjarða
  • NAUST
  • Sól á Suðurlandi
  • SUNN
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert