Verður áfram í gæsluvarðhaldi

Guðgeir Guðmundsson leiddur út úr Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í dag.
Guðgeir Guðmundsson leiddur út úr Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í dag. Morgunblaðið/Sigurgeir S.

Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í dag á kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að Guðgeiri Guðmundssyni verði áfram haldið í gæsluvarðhaldi. Verður hann í haldi til 4. apríl nk. á grundvelli almannahagsmuna.

Manninum er jafnframt gert að undirgangast geðrannsókn, líkt og áður hefur komið fram, en hann var handtekinn á lögmannsstofu í austurborginni sl. mánudag þar sem hann veitti tveimur starfsmönnum áverka með eggvopni. Annar þeirra er alvarlega slasaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert