Samkomulag í fæðingu

Nú er útlit fyrir samkomulag um þinglok.
Nú er útlit fyrir samkomulag um þinglok. mbl.is/Golli

Í fæðingu er samkomulag um að ljúka þingstörfum. Morgunblaðið fékk það staðfest frá áreiðanlegum heimildum í gærkvöldi. Rætt er um það núna að frumvarp um stjórn fiskveiða, kerfisbreytingin, og hin svokallaða rammaáætlun um vernd og nýtingu orkuauðlinda, nái ekki fram að ganga.

Hins vegar sé gert ráð fyrir því að veiðigjaldafrumvarpið verði klárað þó svo að ekki liggi endanlega fyrir nákvæmlega í hvaða mynd það verði.

Sömu heimildir herma einnig að á meðan ekki liggi fyrir hver endanleg mynd veiðigjaldafrumvarpsins verði séu menn ennþá að ræða saman og verið sé að skoða það að ljúka störfum þingsins um næstu helgi.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, vildi ekki fullyrða að samkomulag væri í höfn. „Það á eftir að fara betur yfir þetta. Það er áfram verið að tala saman, verið að þreifa fyrir sér, allavega komnar hugmyndir í gang sem verið er að vinna út frá núna. Síðan þarf að bera þetta undir menn en við erum að reyna að ná utan um þetta.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert