Landnám í öllum fjórðungum

Feðgarnir Davíð T. Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela, og Ólafur Torfason stjórnarformaður …
Feðgarnir Davíð T. Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela, og Ólafur Torfason stjórnarformaður fyrirtækisins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stærsta hótel landsins er meðal verkefna sem Íslandshótel taka þátt í en það hótel mun rísa á Höfðatorgi líkt og kom fram á mbl.is á þriðjudag. Hótelið verður sextán hæðir, þar af verða níu hæðir inndregnar, mun snúa að Bríetartúni (áður Skúlatún) þannig að Skúlagata og Harpa munu blasa við gestum hótelsins.

Hafa keypt Blómavalslóðina við Sigtún

En þetta er ekki eina verkefnið sem eigendur Íslandshótela eru að vinna að því á næstu árum munu rísa ný hótel á landsbyggðinni sem verða rekin af fyrirtækinu og nýverið var gengið frá kaupsamningi á lóðinni við hlið Grand hótels, svo kallaðri Blómavalslóð, við Sigtún en lóðin var í eigu verktakafyrirtækisins Eyktar. Ekki liggur fyrir hvað verði á lóðinni enda er slíkt unnið í samvinnu við íbúa í nágrenninu og skipulagsyfirvöld.

Fjölskyldufyrirtæki með langa sögu

Eigendur yfir 90% hlut Íslandshótela eru Ólafur Torfason, sem er stjórnarformaður fyrirtækisins, og fjölskylda. Um sannkallaðan fjölskyldurekstur er að ræða því öll fjölskyldan kemur að rekstrinum með einum eða öðrum hætti. Sonur hans, Davíð T. Ólafsson, er framkvæmdastjóri Íslandshótela.

Að sögn Ólafs var fyrirtækið Íslandshótel stofnað í fyrra en það rekur tvær hótelkeðjur, Reykjavíkurhótel sem fjölskyldan stofnaði árið 1992, og Fosshótel sem hefur verið í eigu fjölskyldunnar og meðeigenda í þó nokkur ár en sú keðja var stofnuð árið 1996. Alls eru tíu Fosshótel nú í rekstri á landsbyggðinni og þrjú hótel eru rekin undir merkjum Reykjavíkurhótela.

Áður en fyrirtækið Íslandshótel var stofnað voru rekin mörg félög í eigu sömu aðila en við fjárhagslega endurskipulagningu fyrir tveimur árum var reksturinn sameinaður undir einni kennitölu og á fjölskylda Ólafs um 91% hlut í Íslandshótelum.

Aðspurður hvernig samstarfið gengur líta þeir Ólafur og Davíð hvor á annan og brosa. „Þetta getur ekki verið betra og þetta eru hörkuduglegir krakkar,“ segir Ólafur en tekur fram að það sé nú einu sinni þannig að maður geri meiri kröfur til barnanna sinna en annarra.

Franski spítalinn verður hótel

Á næsta ári er ætlunin að opna Fosshótel Austfirði á Fáskrúðsfirði. Þar er um að ræða 26 herbergja hótel í húsi sem er í eigu Minjaverndar en um er að ræða Franska spítalann, eitt helsta kennileiti Fáskrúðsfjarðar. Að sögn Davíðs verður hægt að fjölga herbergjum í 32 síðar.

Eins er ætlunin að stækka Fosshótel Vatnajökul sem er staðsett á Lindarbakka skammt frá Höfn í Hornafirði úr 26 herbergjum í 66 og er það fjárfesting upp á 550 milljónir króna. Eigandi þess hótels er Hótel Vatnajökull ehf. sem er í eigu Íslandshótela.

Árið 2015 er ætlunin að opna Fosshótel Jökul á Hnappavöllum í Öræfum en að sögn þeirra feðga er þörfin mikil fyrir aukið gistirými á Suðausturlandi og þau hótel sem þar starfa ná ekki að anna eftirspurn.

Óljóst er um eignarhald á því hóteli en Ólafur segir að þegar verkefnin eru ekki mjög stór þá eigi Íslandshótel einnig viðkomandi húsnæði en þegar um stórar fjárfestingar er að ræða eins og á Hnappavöllum er reynt að fá fleiri hluthafa að. Alls er um að ræða 80 herbergja hótel á Hnappavöllum og er fjárfestingin metin á 900 milljónir króna.

Fosshótel Reykjavík verður þrjár stjörnur +

Það sama ár mun síðan nýja hótelið á Höfðatorgi taka til starfa undir heitinu Fosshótel Reykjavík. Þar verður eignarhaldið í höndum eignarhaldsfélagsins Höfðahótel en það er í eigu Péturs Guðmundssonar, forstjóra Eyktar, og Íslandsbanka. Eins og fram hefur komið verða 342 herbergi á því hóteli og meta Íslandshótel sína fjárfestingu í verkefninu upp á 500 milljónir króna en heildarkostnaður við verkefnið er átta milljarðar króna.

Ólafur segir að ákveðið hafi verið að hótelið verði rekið undir merkjum Fosshótela þar sem það hafi vantað hótel af þessum klassa hjá keðjunni í Reykjavík. Hótelið verður þrjár stjörnur plús.

Að sögn Davíðs er ljóst að það er næg þörf fyrir fleiri hótel á Íslandi og ekki síst í Reykjavík. Í dag eru ferðaskrifstofur helsti viðskiptavinur Fosshótela, um 70% af gestum hótela Fosshótela koma í gegnum ferðaskrifstofur en 30% eru einstaklingar sem sjá um sínar bókanir sjálfir. Þetta er hins vegar að breytast og það verður sífellt algengara að fólk sé á eigin vegum, einkum og sér í lagi ferðamenn sem bóka gistingu í Reykjavík, segir Davíð.

„Asíubúum hefur fjölgað mjög í hópi ferðamanna sem leggja leið sína til Íslands, Ameríka er líka mjög sterk og Bretar hafa aldrei verið jafn fjölmennir í ferðamannahópnum sem kemur hingað til lands og nú,“ segir Davíð.

Spurðir um stuttan byggingartíma hótelsins við Höfðatorg eða einungis tæp tvö ár segja þeir að ljóst sé að verktakafyrirtækið Eykt, sem annast bygginguna, verði að halda vel á spöðunum. En þeir efast ekki um að það takist að ljúka hótelinu árið 2015.

Langt er síðan tekin var ákvörðun um framkvæmdirnar á Höfðatorgi en vegna hrunsins var bygging hótelsins sett í salt árið 2010. Hins vegar hefur Íslandshótel verið með í myndinni um að reka hótelið þar allt frá upphafi, að sögn Ólafs.

Þar verður rekinn veitingastaður af Íslandshótelum og sennilega þrír litlir fundarsalir enda Grand Hótel ráðstefnuhótel og því telja þeir feðgar óþarft að bæta við fleiri ráðstefnusölum við alla þá sali sem nú eru í boði í Reykjavík. Veitingastaðnum verður einkum ætlað að þjónusta gesti á hótelinu. Alls verða stöðugildin rúmlega 100 talsins sem er ekki ósvipað því sem er á Grand Hótel í dag.

Árið 2016 er stefnt að því að búið verði að stækka Fosshótel Húsavík úr 70 herbergjum í 114 og eins eru ýmsar hugmyndir í gangi varðandi Reykholt í Borgarfirði og styrkja önnur hótel sem þegar eru í rekstri.

Þeir Ólafur og Davíð eru sammála um að það megi heldur ekki fara of geyst því um miklar fjárfestingar er að ræða.

Hótel gorkúlur dagsins í dag

Hótel rísa nú líkt og gorkúlur í Reykjavík og víðar og óttast ýmsir að ferðaþjónustan sé á svipaðri leið og loðdýraræktun og laxeldi var á árum áður. Aðspurðir hvort þeir óttist ekki að svipuð örlög geti beðið hóteleigenda og þeirra sem voru í laxeldi og loðdýraræktun áður fyrr.

„Jú, að sjálfsögðu veltir maður ýmsu fyrir sér og vill ekki fara of geyst. En það er ljóst að þörfin er fyrir hendi. Þegar við byrjuðum árið 1992 voru ekki margir bankamenn og fjárfestar sem höfðu trú á ferðaþjónustunni enda brenndir af fjárfestingum sem fóru illa. En nú hafa þessar greinar eins og fiskeldi og loðdýraræktun komið til baka og nú má segja að ferðaþjónustan hafi slitið barnsskónum og sé orðin að alvöruatvinnugrein.“

Byggja stærsta hótel landsins

Tölvuteikning af Höfðatorgi. Hótelbyggingin snýr að Bríetartúni en turninn er …
Tölvuteikning af Höfðatorgi. Hótelbyggingin snýr að Bríetartúni en turninn er alls 16 hæðir. Þar af eru níu hæðir inndregnar. Um 17 þúsund fermetra byggingu er að ræða. PK arkitektar
Hótel sem Íslandshótel reka en á næstu árum munu fleiri …
Hótel sem Íslandshótel reka en á næstu árum munu fleiri hótel bætast undir regnhlífina sem nær allt aftur til ársins1992. mbl.is/Heiðrún Björt
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert