Vottorð sem inniheldur viðkvæmar upplýsingar

Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson verjandi Stefáns Loga Sívarssonar í máli ákæruvaldsins …
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson verjandi Stefáns Loga Sívarssonar í máli ákæruvaldsins gegn Stefáni, Stefáni Blackburn og þremur öðrum. mbl.is/Sigurgeir

„Gögnin, sérstaklega eitt vottorðið, eru gögn sem orðin eru til í trúnaðarsambandi ákærða [Stefáns Loga] og læknis sem skoðaði hann. Það vottorð hefur að geyma viðkvæmar persónuupplýsingar sem eiga ekkert erindi inn í þetta mál,“ sagði Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi Stefáns Loga Sívarssonar í máli ákæruvaldsins gegn Stefáni, Stefáni Blackburn og þremur öðrum. Þriðji dagur aðalmeðferðarinnar hófst eftir hádegið í gær en fjórði dagur hennar verður ekki fyrr en 20. desember sökum þess að beðið er eftir því að vitni skili sér til Íslands frá útlöndum.

Saksóknari hóf dómþing í gær á því að leggja fram þrjú læknisvottorð yfir Stefáni Loga og geisladisk með skýrslutöku yfir honum hjá lögreglu. Gögnin er til komin vegna annars máls, líkamsárásar sem Stefán Logi varð fyrir í Ystaseli í Breiðholti 17. maí síðastliðinn. Saksóknarinn sagðist með framlagningu gagnanna vera að svara ákveðnum fullyrðingum í framburði Stefáns Loga fyrir dóminum. Meðal annars því sem Stefán Logi sagði um að hann hefði ekki getað beitt neinn ofbeldi enda brotinn á báðum höndum á þessum tíma vegna líkamsárásarinnar.

Vilhjálmur mótmælti því harðlega að læknisvottorðin yrðu lögð fram, enda hefði ríkissaksóknari átt að óska eftir heimild Stefáns Loga eða lögmanns hans. „Gögnin eru komin úr öðru sakamáli þar sem ákærði er brotaþoli eftir mjög alvarlega líkamsárás. Ríkissaksóknari óskaði ekki eftir heimild ákærða eða lögmanns hans til þess að leggja gögnin fram og ég var að sjá þau fyrst í þessu þinghaldi,“ sagði Vilhjálmur.

Máli sínu til stuðnings vísaði Vilhjálmur meðal annars í 4. mgr. 134. gr. laga um meðferð sakamála og svo 2. mgr. 119. gr. sömu laga. Í fyrra ákvæðinu segir: „Óheimilt er að leggja fram skjöl eða annars konar gögn ef þau hafa að geyma upplýsingar um það sem sakborningi og verjanda hans hefur farið á milli, svo og upplýsingar sem 2. mgr. 119. gr. tekur til.“

Í 2. mgr. 119. gr. segir svo að þær upplýsingar eigi við um einkahagi manns sem vitni hefur verið trúað fyrir „í starfi sem endurskoðandi, félagsráðgjafi, lögmaður, læknir, prestur, forstöðumaður trúfélags eða sálfræðingur ellegar í öðru starfi sem viðlíka trúnaðarskylda fylgir.“

Áréttaði hann að til þess að hægt væri að leggja þessi vottorð fram hefði þurft að afla heimildar.

Saksóknari lagði einnig fram geisladisk með skýrslutöku af Stefáni Loga hjá lögreglu vegna líkamsárásarinnar í Ystaseli. Aðeins var um eitt eintak að ræða fyrir dóminn. „Það er með ólíkindum að ákæruvaldið skuli leggja fram málsgögn á þessu stigi málsins án þess að afhenda verjanda ákærða eintak af gögnunum sem það er að leggja fram. Það er brot á mörgum grundvallarreglum um réttláta málsmeðferð fyrir dómi.“

Dómformaður bað Vilhjálm um að bera upp mótmælin í málflutningsræðu sinni.

Fljúga þarf með fólk til Íslands

Til stóð að aðalmeðferð stæði í þrjá daga og átti að ljúka málflutningsræðum í gær. Sú dagskrá hefur riðlast mikið og helst vegna þess að nauðsynlegt þykir að leidd verði fyrir dóminn vitni sem stödd eru erlendis.

Fyrir það fyrsta er að ræða námsmann í Danmörku, en Stefán Blackburn er ákærður í málinu fyrir að hafa ráðist á hann í miðborg Reykjavíkur. Sá gaf fyrst skýrslu í gegnum síma en dómarar töldu að maðurinn yrði að koma fyrir dóminn og gefa skýrslu milliliðalaust.

Þá er húsráðandinn á Stokkseyri, sem að lokum hleypti öðru fórnarlambinu úr prísundinni , staddur í Bandaríkjunum. Hann ætlaði ekki að koma aftur til landsins fyrr en í febrúar en dómarar sögðu að ríkissaksóknari yrði einfaldlega að fá hann fyrr, enda sætu menn í gæsluvarðhaldi vegna málsins.

Þá er stúlka sem var í samkvæminu í Breiðholti í Bandaríkjunum og kemur í byrjun janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert