12 milljarðar í Höfðatorg

Hönnun nýja turnsins við Höfðatorg er að fara af stað …
Hönnun nýja turnsins við Höfðatorg er að fara af stað  Hann verður við hlið 16 hæða hótelturns. Í nýja turninum verða 70-75 íbúðir. mbl.is/Ómar Óskarsson

Áætlaður kostnaður við fyrirhugaðan íbúðaturn og hótel sem Eykt áformar að reisa við Höfðatorg er samtals um 12 milljarðar króna. 200-300 manns munu vinna að staðaldri við hótelið sem nú er byrjað á og 80 manns til viðbótar munu vinna við fjölbýlishúsið.

Eykt áformar að hefja framkvæmdir við 12 hæða íbúðaturn við Höfðatorg næsta haust. Á bilinu 70 til 75 íbúðir verða í turninum og er áætlað að framkvæmdum ljúki síðla árs 2016. Pétur Guðmundsson, forstjóri Eyktar, segir að um 5 milljarða króna framkvæmd sé að ræða, og telur að markaður sé fyrir íbúðir og atvinnuhúsnæði á Höfðatorgi.

Í umfjöllun um þessar framkvæmdir í Morgunblaðinu í dag kemur m.a. fram, að unnið er að hönnun íbúðaturnsins sem verður um 12 þúsund fermetrar að flatarmáli, ofanjarðar. Á jarðhæð verður þjónustustarfsemi og bílakjallari undir. Eykt hefur mikla trú á Höfðatorgi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert