Fundur boðaður í kjaradeilunni

mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Fundur hefur verið boðaður í dag klukkan 17:00 í kjaradeilu Félags flugvallastarfsmanna ríkisins og Isavia.

Kristján Jóhannsson, formaður og framkvæmdastjóri FFR, segir í samtali við mbl.is að ekkert nýtt hafi í sjálfu sér gerst í deilunni frá því fyrir helgi en vonandi náist einhver árangur á fundinum. Það verði hins vegar að koma í ljós.

„Þetta er svona stöðumat, hvar við stöndum fyrir lokahnykkinn, hef ég trú á,“ segir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert