Tveir í haldi lögreglu eftir líkamsárás

Frá Grundarfirði.
Frá Grundarfirði. mbl.is/Sigurður Bogi

Tveir menn eru í haldi lögreglunnar í Grundarfirði eftir líkamsárás. Sá sem varð fyrir árásinni er karlmaður á þrítugsaldri. Hann hefur verið fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann með alvarlega höfuðáverka, en manninum er haldið sofandi í öndunarvél.

Að sögn lögreglunnar í Grundarfirði er málið í rannsókn, en árásin var um klukkan hálf þrjú í nótt. Ekki er talið að áhöld eða vopn hafi verið notuð í árásinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert