Átökin um DV fara harðandi. Sigurður G. Guðjónsson rakti atburðarásina í gær í pistli á Pressunni, þar sem hann skrifaði meðal annars:
„Svona í Sandkornsstíl DV getur sagan af lánveitingunni hljóðað einhvern veginn á þennan veg: Reynir fór á fund útgerðarmanns sem átti í deilum við annan. Sá sem Reynir fór til lét Reyni fá fé. Og blaðið jafnvel líka. DV fór í framhaldi að segja frá deilum útgerðarmannanna á forsendum þess sem borgaði.
Þannig vinnur mafían og þannig segir sagan að Reynir Traustason vinni. Sel hana ekki dýrara en ég keypti hana.“
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, greip þessa frásögn Sigurðar á lofti og skrifaði á vefsvæði sitt:
„Fáum dylst að hér ræðir Sigurður G. það sem hingað til hefur eingöngu verið hvíslað um manna á milli í lúkörum og heitum pottum. Það er að segja að Guðmundur Krisjánsson í Brimi hafi afhent Reyni Traustasyni 15.000.000 kr. í þeim tilgangi að losa sjálfan sig við umfjöllun um ýmis mál og fá í staðin umfjöllun um meðeigendur sýna i Vinnslustöð Vestmannaeyja og þá helst Sigurgeir Brynjar (Binna í Vinnsló). Hér skýtur Sigurður G. fast úr báðum hlaupum.“
Elliði heldur áfram:
„Ef satt reynist að Guðmundur í Brim hafi afhent Reyni Traustasyni 15 milljónir í þeim tilgangi að kaupa sér óvægna og skaðlega umfjöllun um andstæðing sinni í viðskipum þá er það alvarlegt.
Ef fjölmiðli er beitt markvisst til að pönkast á óvildarfólki fjársterkra aðila og taka það niður þá er það alvarlegt.
Ef einn af stærstu hluthöfum hlutafélags notfærir sér upplýsingar sem hann kemst yfir í gegnum trúnaðarstöðu sína til að skaða meðeignendur sýna þá er það alvarlegt.
Ef Vinnslustöð Vestmannaeyja og meirihluti eigenda hefur orðið fyrir markvissum árásum DV í þeim tilgangi að skaða þá er það alvarlegt. Það er ekkert annað en aðför að starfsmönnum, eigendum og samfélaginu í Eyjum í heild.
Ásökun Sigurðar er grafalvarleg og vart við öðru að búast en að þetta mál verði skoðað í kjölinn. Verðlaunablaðamenn hljóta að taka þessu alvarlega og krefja Guðmund í Brimi og Reyni svara. Þangað til veit maður ekki hvað er satt í þessu máli.“