„Það eru 224 þátttakendur búnir að skrá sig en það er alveg uppselt fyrir löngu. Við byrjuðum að selja inn fyrir þremur vikum og það seldist allt upp strax,“ segir Linda Hilmarsdóttir, framkvæmdarstjóri líkamsræktarstöðvarinnar Hress, um Hressleikana sem haldnir eru á morgun.
Hressleikarnir eru góðgerðarleikar sem haldnir eru nú í fimmta skiptið í Hress. Á hverju ári er leitast eftir því að styrkja fólk í Hafnarfirði og í ár styrkja Hressleikarnir fimm manna fjölskyldu sem samanstendur af hjónunum Hildi Brynju og Erlendi. Þau eiga þrjú börn, þau, Emil Snæ, Ívar Elí og Írisi Emblu. Þegar Íris Embla var sex mánaða gömul kom í ljós að hún væri með ólæknandi heila- og taugasjúkdóm. Auk þess er hún flogaveik og sjónskert.
Hluti úr viðtali Gaflari.is við Hildi Brynju birtist á Smartlandi í gær.
Þar kemur fram að eftir að Íris Embla greindist hefur Hildur Brynja ekki unnið úti en dóttirin er þó með pláss á leikskólanum Víðivöllum í Hafnarfirði. Inni á milli koma góð tímabil og þá kemur fyrir að hún mæti alla fimm daga vikunnar en þegar það eru miklar pestar að ganga verður Íris Embla sérlega viðkvæm.
Heilsufar Írisar Emblu stjórnar lífi fjölskyldunnar og geta þau yfirleitt ekki gert nein plön og þurfa alltaf að vera nálægt sjúkrahúsi ef eitthvað kæmi upp á. Undanfarnir mánuðir hafa verið erfiðir því sú stutta fær mikla krampa og lendir í framhaldinu í öndunarstoppi.
Á Hressleikunum æfa allir þátttakendur saman í tvær klukkustundir. Fólki verður skipt í átta 28 manna lið og æfa þau í átta lotum. Æft verður í ýmsu, svo sem zúmba, spinning, foam fit, jóga og lyftingum.
„Við notum þetta einnig til þess að fólk fari út úr æfingarammanum. Fólk er látið prófa ýmislegt sem það þekkir jafnvel ekki neitt. Sumir eru þá kannski að prófa zumba eða jóga í fyrsta skipti á meðan aðrir prófa kannski lyftingar í fyrsta skipti,“ segir Linda.
Hver þáttakandi á morgun greiðir 2500 krónur í þátttökugjald en allir kennarar og aðrir gefa vinnu sína á morgun. „Ég er stöðugt að fá símtöl frá fólki sem vill hjálpa á einhvern hátt. Á morgun verður líka happdrætti og hægt að kaupa sérstakan Hressleikadrykk. Síðan verður hægt að leggja inn á reikningsnúmer,“ segir Linda sem kallar Hressleikana hápunkt ársins í Hress.
„Það er svo mikil samkennd og vinátta. Starfsfólkið vinnur þetta saman án þess að biðja um krónu. Það gerir svo mikið fyrir okkar litla samfélag.“