Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis- og dómsmálaráðherra segir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra á vissan hátt fórnarlamb í lekamálinu. Segist hann styðja Hönnu Birnu í sínum störfum. Þetta kom fram í Speglinum á Rás 1.
Sagði Sigmundur Davíð einnig að ekki hefði verið rætt hvað yrði nú um stöðu dómsmálaráðherra, þ.e. hvort og þá hvenær Hanna Birna tæki við embættinu á ný.