Ekki liggur fyrir hvort að ákæruvaldið muni áfrýja dómi í lekamálinu til Hæstaréttar. Þetta sagði Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, eftir að Gísli Freyr Valdórsson, fv. aðstoðarmaður innanríkisráðherra, var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi áðan.
Lagði hann áherslu á að gott væri að niðurstaða væri komin í málið þó hann væri ekki endilega fullkomlega sammála henni.