Drengurinn sem lenti í alvarlegu slysi við Reykdalsstíflu í Hafnarfirði ásamt bróður sínum er vaknaður og kominn úr öndunarvél samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum.
Drengurinn er á hægum batavegi og verður áfram á gjörgæsludeild spítalans við Hringbraut þar sem hann fær viðeigandi stuðning og meðferð. Fjölskylda hansdvelur þar hjá honum.
Bróðir hans var útskrifaður af sjúkrahúsinu fyrr í vikunni en hann var endurlífgaður á slysstað.
Dv.is greindi fyrst frá.