Helltu líklega eldfimum vökva

Mikinn reyk lagði frá svæðinu.
Mikinn reyk lagði frá svæðinu. Ljósmynd/Sigmundur Sigurgeirsson

Fjölmargir komu að slökkvistarfi á Selfossi í gær, þ. á m. björgunarsveitarmenn, Rauði krossinn og barnaverndaryfirvöld. Loka þurfti götum og rýma 50 hús í nágrenninu, en áætlað er að um 200 manns séu búsettir á rýmingarsvæðinu.

Fjöldahjálparstöð var opnuð í Vallarskóla, en þangað leituðu 25 manns. Þetta kemur fram í frétt á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Tilkynnt var um eldinn kl. 18.33, en slökkvilið Brunavarna Árnessýslu réði að niðurlögum hans á skömmum tíma. Eldmaturinn voru plaströr sem tilheyra röraverksmiðjunni Set.

Líkt og mbl.is hefur sagt frá kviknaði eldurinn út frá fikti tveggja 9 ára gamalla drengja. Drengirnir fundu kveikjara á víðafangi og kveiktu eld í spítnabraki á lóðinni þar sem rörin voru geymd. Áður höfðu þeir fundið brúsa með vökva sem þeir helltu úr.

Samkvæmt lögreglu eru líkur á að í brúsanum hafi verið eldfimur vökvi, sem aftur útskýrir hvers vegna eldurinn magnaðist á skömmum tíma.

„Barnaverndaryfirvöld í Árborg munu vinna í málum drengjana með foreldrum þeirra,“ segir í frétt á Facebook-síðu lögreglunnar. „Ljóst er að þarna var um óvitaskap að ræða og drengirnir ekki áður valdið tjóni á þessu svæði né annars staðar.“

Þar segir einnig að lögregla vilji koma þakklæti til almennings fyrir að virða lokanir og gefa viðbragðsaðilum rými til slökkvistarfsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert