Andlát: Þorsteinn Elías Þorsteinsson

Þorsteinn Elías Þorsteinsson.
Þorsteinn Elías Þorsteinsson.

Þorsteinn Elías Þorsteinsson, þjálfari þriðja flokks kvenna í knattspyrnu hjá Fylki, lést mánudaginn 8. júní. Þorsteinn var 37 ára. Banamein hans var heilablóðfall.

Þorsteinn veiktist alvarlega á æfingu hjá þriðja flokki kvenna sl. sunnudag.

Í tilkynningu sem hefur verið birt á heimasíðu Fylkis segir, að stúlkur á æfingu hafi komið Þorsteini til hjálpar og sótt aðstoð í Árbæjarþrek. Veitt var fyrsta hjálp og honum komið undir læknishendur. Hann andaðist á sjúkrahúsi sl. mánudag.

Þorsteinn, sem var líffæragjafi, fæddist 14. janúar 1978. Hann lætur eftir sig tvær dætur. 

„Barna- og unglingaráð og stjórnendur í Fylki boðuðu til fundar á sunnadagskvöldinu með þeim sem vitni urðu að atvikinu og aðstandendum. Þór Hauksson, sóknarprestur í Árbæjarkirkju, var viðstaddur fundinn. Áfram verður lögð áhersla á að hlúa að þeim sem komu að málinu.

Starfsfólk Fylkis vill koma á framfæri samúðarkveðjum til aðstandenda og vina Þorsteins. Hugur okkar er hjá þeim sem hafa um sárt að binda,“ segir í tilkynningu sem Árni Jónsson, framkvæmdastjóri Fylkis, birti á heimasíðu félagsins í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert