Ósáttur með hatursfulla og illgjarna umræðu

Katrín Jakobsdóttir, forsetaframbjóðandi og fyrrverandi forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir, forsetaframbjóðandi og fyrrverandi forsætisráðherra. mbl.is/Arnþór Birkisson

Sigursteinn Másson fjölmiðlamaður segir að margir virðast hreinlega hata Katrínu Jakobsdóttur fyrir það að hafa myndað ríkisstjórn með Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki.

Þetta segir Sigursteinn í færslu á Facebook en hann er ósáttur með hatursfulla og illgjarna umræðu um Katrínu, sem yfirgaf embætti forsætisráðherra á dögunum og er nú í framboði til forseta Íslands.

Dapurlegur vitnisburður

„Það persónulega skítkast, sú illgirni svo jaðrar við hatur, sem nokkrir háværir einstaklingar hafa í frammi að þessu sinni gagnvart Katrínu Jakobsdóttur er dapurlegur vitnisburður um þann forarpytt sem opinber umræða er komin út í ekki síst með tilkomu samfélagsmiðla,“ segir Sigursteinn meðal annars í færslu sinni.

Hann segir einstaka frambjóðendur, og fylgisfólk þeirra, reyna að stækka sig sjálfa með því að gera lítið úr öðrum, dylgja um óheilindi og vanhæfni.

Það hefur verið áberandi á undanförnum árum hve tilteknar konur hafa verið áberandi í persónuárásum á Katrínu og þeim er nú haldið áfram af enn meiri ákafa en áður. Henni er persónulega kennt um allt það sem umdeilanlegt hefur verið en engu skeytt um þann ótvíræða árangur sem Katrín og stjórnkænska hennar, jákvæður drífandi persónuleiki og heiðarleiki, hefur skilað Íslandi.

Sigursteinn segist hafa þekkt Katrínu í meira en tvo áratugi og fullyrðir að þar fari ekki bara einn hæfileikaríkasti og besti stjórnmálamaður sem þessi þjóð hafi átt heldur sé hún ein besta og heilsteyptasta manneskja sem hann hafi kynnst.

Margir virðast hreinlega hata Katrínu

Margir virðast hreinlega hata Katrínu fyrir það að hafa myndað ríkisstjórn með Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki. Hún vissi vel að það yrði ekki til að afla henni vinsælda í baklandinu né hjá mörgu vinstra fólki en hún vissi líka að það var eina leiðin til að starfhæf stjórn yrði mynduð eftir Alþingiskosningarnar,“ segir Sigursteinn ennfremur.

Sigursteinn segist treysta engum betur en Katrínu til að verða næsti forseti Íslands.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert