„Ég um mig frá mér til mín“

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eggert

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að smæð samfélagsins og fákeppni kalli á nýtt regluverk á fjármálamarkaði. Málefni Borgunar og arðgreiðslur tryggingafélaga úr svokölluðum bótasjóðum séu aðeins angar af mun stærra máli. Ríkjandi hugmyndafræði fyrir hrun sé enn við líði.

Karl ræddi málið undir liðum störf þingsins á Alþingi í morgun. 

Hann segir að umræða um tryggingafélögin og sölu Borgunar séu aðeins angar af mun stærra máli, þ.e. hvernig þjóðfélagi Íslendingar vilji lifa í í framtíðinni. Hann spurði hvort landsmenn vilji lifa í samfélagi misskiptingar þar sem hinir auðugu maki krókinn að vild og þar sem ógegnsæi og óréttlæti ríki. Og hvort menn vilji snúa aftur til áranna fyrir hrun. 

„Í bankahruninu 2008 var hávær krafa um eitthvað sem kallaðist Nýja Ísland. Það var helst á baráttumönnum að skilja, að byggja ætti upp nýtt þjóðfélag sem allir væru nánast jafnir, gæðum þjóðfélagsins yrði skipt upp á jafnan hátt og væntanlega heiðarlegan hátt. Sú hugmynd var auðvitað ekkert annað en útópía. Flestir vilja alltaf meira. Meiri lífsgæði, hærri laun, betri bíl, stærra hús, betri stöðu,“ sagði Karl.

Nýjar persónur en hugmyndafræðin sú sama

Hann bætti við, að þeir sem auðguðust vel fyrir hrun hafi ekki gleymt ljómanum sem hafi verið yfir öllu. „Í dag eru komnar nýjar persónur og leikendur á sviðið en hugmyndafræðin er sú sama. Og hún byggist á eftirfarandi: Ég um mig frá mér til mín.“

Karl segir að mönnum beri að gera það sem þeir geti til að þjóðfélagið verði betra og sanngjarnara. 

„Smæð samfélagsins og fákeppni kallar á nýtt regluverk á fjármálamarkaði. Það er ekki sjálfsagt að allt það sem virkar í margfalt stærri samfélögum gangi hér. Verum óhrædd við að gera breytingar, það er krafa samfélagsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert