Fluttur með þyrlu eftir bílslys

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Eggert

Bílslys varð á Holtavörðuheiði í nótt og var einn fluttur með þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Landspítalann í Fossvogi. Ekki er vitað um ástand hans á þessari stundu.

Þyrla Landhelgisgæslunnar lagði af stað frá Reykjavík klukkan 05:23 í morgun og sótti hinn slasaða. Var flogið með hann á Landspítalann í Fossvogi og lenti þyrlan þar klukkan 07:02.

Frekari upplýsingar er ekki að fá á þessari stundu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert