„Ég hef undanfarnar vikur ferðast mikið um kjördæmið og fundið fyrir gríðarlega miklum stuðningi og fyrir það er ég mjög þakklátur.“
Þetta segir Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, í Morgunblaðinu í dag.
Að hans sögn hafa margir skorað á hann að undanförnu að bjóða sig fram til fyrsta sætis í kjördæminu fyrir komandi alþingiskosningar. „Það hafa margir nefnt það við mig hvort ég væri ekki tilbúinn til að stíga alla leið, en ég hef nú ekki svarað þeirri spurningu enn.“