Staðan óbreytt, en litlu munar

Birgir Ármannsson og Sigríður Andersen.
Birgir Ármannsson og Sigríður Andersen.

Röð frambjóðenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er óbreytt frá fyrstu tölum sem birtar voru fyrr í kvöld, en nú hafa verið talin 2.497 atkvæði af 3.430.

Síðustu talna að vænta líklega í kringum miðnætti, samkvæmt upplýsingum úr Valhöll þar sem talningin fer  fram.

Eingöngu tveimur atkvæðum munar á þeim Sigríði Á. Andersen og Birgi Ármannssyni í fimmta sæti listans, Sigríður er með 1.188 atkvæði í sætið og Birgir er með 1.186. 

Röð frambjóðenda er sem hér segir:

  1. Ólöf Nordal
  2. Guðlaugur Þór Þórðarson
  3. Brynjar Níelsson
  4. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
  5. Sigríður Á. Andersen
  6. Birgir Ármansson
  7. Hildur Sverrisdóttir
  8. Albert Guðmundsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert