Fundur Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar um stjórnarmyndun stendur enn yfir og gæti dregist fram á nótt. Flokkarnir hófu formlegar viðræður í fyrradag.
Frétt mbl.is: Viðræðum haldið áfram í dag
Í örstuttu símtali mbl.is við Benedikt Jóhannesson í kvöld sagði hann að fundur væri enn í gangi og viðræður væru að mjakast.
„Þetta getur verið fram á nótt,“ sagði Benedikt.
Samkvæmt heimildum RÚV hófst fundur formanna flokkanna klukkan níu í morgun en ekki var gefið upp hvar hann er haldinn.
Benedikt hafði áður sagt við mbl.is að hann vonaðist til að niðurstaða yrði komin í málið um miðja viku.