Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði við fjölmiðla áður en fundur formanna þingflokkanna hófst í stjórnarráðinu að hann vildi láta aftur reyna á stjórnarmyndunarviðræður við Viðreisn og Bjarta framtíð.
Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra, boðaði til fundarins, sem hófst klukkan 11. Ræða átti störf þingsins.
Alþingi verður kallað saman á morgun klukkan 13.30. Þar verður fjárlagafrumvarpið kynnt þingmönnum.