Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur veitt Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, umboð til stjórnarmyndunar.
Þessu greindi Bjarni frá eftir fund sinn með Guðna á Bessastöðum. Bjarni hefur rætt við formenn Viðreisnar og Bjartrar framtíðar undanfarna daga með ríkisstjórnarsamstarf í huga.
„Við höfum átt í óformlegum samtölum. Við höfum þokað málefnavinnunni nokkuð áfram en höfum ekki lokið myndun nýrrar ríkisstjórnar,“ sagði Bjarni og bætti við að ýmislegt standi út af borðinu.
„Það er samkomulag á milli okkar að láta reyna á það áfram. Við erum þó komnir þó nokkuð langt.“ Hann sagði mikilvægt að þessir þrír flokkar myndu ná að úttala sig um hlutina sérstaklega þar sem samstarf þessara þriggja flokka myndar minnsta mögulega þingmeirihluta. Bjarni viðurkenndi að það væru ákveðin veikleikamerki.
Bjarni sagði fullt tilefni til að hafa hlutina uppi á borðum og hafa þá formlegri. „Ég er mjög sáttur við það og nokkuð bjartsýnn á framhaldið.“
Ný ríkisstjórn verður líklega mynduð fyrir 24. janúar þegar þing kemur saman á ný, að sögn Bjarna. Hann mun skipa embætti forsætisráðherra ef flokkarnir ná saman.
Forseti Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fundar síns með Bjarna. Þar kemur fram að hann hafi boðað Bjarna á sinn fund eftir að hafa fundað með Benedikt Jóhannessyni, formanni Viðreisnar og Óttarri Proppé, formanni Bjartrar framtíðar, fyrr í dag.
Yfirlýsingin í heild sinni:
„Rúmur hálfur mánuður er liðinn frá því að Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata, skilaði fyrir hönd þess flokks umboði forseta til stjórnarmyndunar. Þingstörf tóku þá við og hlé var gert á formlegum viðræðum um myndun nýrrar ríkisstjórnar sem nyti meirihlutastuðnings á Alþingi.
Frá því að þingi var frestað hafa átt sér stað óformlegar viðræður fulltrúa Bjartrar framtíðar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks um möguleika á stjórnarsamstarfi þessara flokka. Fyrr í dag gengu Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, og Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, á fund minn og lýstu vilja til að ganga til formlegra viðræðna við Sjálfstæðisflokkinn um myndun ríkisstjórnar þessara flokka, undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Í kjölfar þessa fundar, og í ljósi undangenginna viðræðna, boðaði ég Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, á fund minn. Að loknum samræðum okkar um stöðu mála fól ég honum umboð til stjórnarmyndunar.“
Frétt mbl.is: Bjarni er mættur á Bessastaði
Frétt mbl.is: Bjarni boðaður á Bessastaði
Bjarni fékk umboðið til stjórnarmyndunar hjá forseta Íslands fyrir tæpum tveimur mánuðum en honum tókst ekki að mynda ríkisstjórn.
Frétt mbl.is: Bjarni Benediktsson fær umboðið
Við það tækifæri sagði Guðni þann kost vera vænlegastan til árangurs að láta Bjarna fá umboðið eftir niðurstöður kosninganna.