„Það verður unnið í sátt og það verður þjóðaratkvæðisgreiðsla framkvæmd af Alþingi,“ sagði Björt Ólafsdóttir, þingkona Bjartrar framtíðar, um Evrópumálin eftir að stjórnarsáttmálinn var samþykktur á stjórnarfundi flokksins.
Björt sagði að frumvarpið yrði ekki lagt fram af ríkisstjórninni heldur myndu Evrópuflokkarnir reyna að leggja fram frumvarp á seinni hluta kjörtímabilsins.
Frétt mbl.is: Björt framtíð samþykkti sáttmálann
Stjórn Bjartrar framtíðar samþykkti stjórnarsáttmála fyrirhugaðrar ríkisstjórnar með 51 atkvæði gegn 18 eftir langa fundarsetu í kvöld.
„Fólk var ánægt með ýmis fingraför sem Björt framtíð hefur sett á þennan sáttmála en það var dálítið hugsi yfir ESB niðurstöðunni. Það verður bara að segjast eins og er en staðan er þannig að Evrópuflokkarnir fengu ekki afgerandi stuðning í kosningunum og þess vegna er niðurstaðan ásættanleg í því ljósi,“ sagði Björt enn fremur.
Spurð um sjávarútvegsmálin sagði Björt að þau væru opin til túlkunar. Ýmsir möguleikar verði skoðaðir, þar á meðal markaðstengt auðlindagjald.