„Við eigum eftir að ræða málin“

Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, heilsar Páli Vali Björnssyni, fyrrverandi …
Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, heilsar Páli Vali Björnssyni, fyrrverandi þingmanni flokksins, við komuna á fundinn í kvöld. mbl.is/Golli

„Ég átta mig ekki enn á því, fund­ur­inn er ekki byrjaður og við eig­um eft­ir að ræða mál­in. Það hef­ur verið mikið um­tal í sam­fé­lag­inu og við sjá­um hvernig fólk upp­lif­ir það.“

Þetta sagði Ótt­arr Proppé, formaður Bjartr­ar framtíðar, fyr­ir fund stjórn­ar flokks­ins sem nú er haf­inn í Gerðubergi í Reykja­vík, spurður hvort umræðan um að Bjarni Bene­dikts­son, formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, hefði setið á skýrslu um eign­ir Íslend­inga í af­l­ands­fé­lög­um gæti haft áhrif á af­greiðslu fund­ar­ins á stjórn­arsátt­mála fyr­ir­hugaðrar rík­is­stjórn­ar.

Ótt­arr sagði að lagt hefði verið upp með að fund­ur­inn tæki tvo tíma en hann gæti dreg­ist lengra fram á kvöld. Að skýrslu­mál­inu und­an­skildu var Ótt­arr sann­færður um ágæti sátt­mál­ans. „Ég myndi ekki koma með stjórn­arsátt­mála sem ég teldi ekki að væri góður.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert