Sjáðu fundinn með Ólafi í heild sinni

Ólafur vildi meina að hann hefði nýjar upplýsingar fram að …
Ólafur vildi meina að hann hefði nýjar upplýsingar fram að færa. Nefndarmenn voru ekki sammála. mbl.is/Golli

Ólafur Ólafsson fjárfestir, oft kenndur við Samskip, mætti á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í gær. Hann hugðist kynna upplýsingar sem hann vildi meina að vörpuðu nýju ljósi á aðkomu þýska bankans Hauck og Aufhäuser að kaupum 48,5 prósenta hlutar í Búnaðarbanka Íslands árið 2003. Nefndarmenn voru hins vegar sammála um það á fundinum í gær að gögnin sem Ólafur afhenti væru ekki ný, enda hefðu þau verið aðgengileg nefndinni og vísað væri til flestra þeirra í skýrslu nefndarinnar. Þeir skildu því ekki af hverju Ólafur óskaði eftir því að koma fyrir nefndina.

Sumum nefndarmanna var heitt í hamsi á fundinum og þjörmuðu þeir að Ólafi, en hann gaf ekki alltaf skýr svör, þrátt fyrir að spurningar væru ítrekaðar. Hann fullyrti hins vegar að hann svaraði af fullri einlægni og eftir bestu vitund. Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem sat fundinn í fjarveru Brynjars Níelssonar, flokksfélaga hans, gekk hart fram og þurfti oftar en einu sinni að biðja hann um að hafa sig hægan. Hér fyrir neðan er hægt að sjá orðaskipti þeirra og allan fundinn í heild sinni.

Ólaf­ur var stjórn­ar­formaður Eglu, stærsta ein­staka aðila í kaup­um S-hóps­ins svo­kallaða á hlutnum í bankanum, en þýski bankinn var skráður fyrir helmingshlut í Eglu.

En rann­sókn­ar­nefnd Alþing­is, um söluna á Búnaðarbankanum, komst að þeirri niður­stöðu að stjórn­völd, fjöl­miðlar og al­menn­ing­ur hefðu verið blekkt í aðdrag­anda og kjöl­far söl­unn­ar. Enda hefði aðkoma þýska bankanas aðeins verið til málamynda. Hann hefði aldrei verið raunverulegur eigandi og hagnaðist lítið á kaupunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert